Hef ekkert að segja annað en það að mér finst ég vera orðin voða brún. Karlinn í næsta húsi er frekar flekkótur í framan, eftir að hafa dottið blindfullur á nefið hérna fyrir utan og látið okkur Gutta bera sig upp tröppurnar á meðan hann fór með gömul sjómans söknuðar ljóð um einhverja fagra snót.... anda... bölvuðvitleysa.... En hann er samt brúnni en ég... enda búin að sitja í andirinu hjá sér á sundskýlunni einum fata, síðan í mars. Hefur verið frekar vandræðalegt því sumir gesta minna hafa haldið að hann væri ber.... spídó er kannski ekki alveg flottasta sundfata fyrirtækið... Þá er kannski betra að hafa hann í garðskúrnum sínum, faldan bakvið bárujárns skjólvegg sem hann er búinn að byggja sér... já þetta er skemmtilegur karl.... nema stundum....
æ.... mér er ílt í hausnum..... er farin út í ferska loftið....
þriðjudagur, maí 31, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
oh! ég man þegar gott veður var "gott". Hér er bara of mikið af því góða. Hlakka til að fá Monsoon rigninguna þá kælist aðeins hérna og ég get farið út í sólbað.
Skrifa ummæli